
"Frá skruddu til skálar" – Listræn endurvinnsla úr endurunnum bókapappa - miðstærð
5.500 kr
English below
Millistærð uþb: L:10 x B:18 x H:14 cm
ATH-ATH!!! - engir tvær skálar eru nákvæmlega eins og því er betra ef þú hefur tök á að koma á vinnustofuna mína (Kársnesið í Kópavogi) og velja "þína". Þar er mun meira úrval. Hringdu í síma 699-1179.
Kveðja,
Sigrún
Dæmi um notkunarmöguleika:
- Fyrir handavinnu*
- Undir skartgripi.
- Fyrir gleraugun sem alltaf týnast.
- Á matarborðið fyrir brauð, snakk,ávexti.
- Sem skrautmunur á stofuborði td. undir þurrblómaskreytingu.
- Mjög fallegar saman með “Frá bók til bakka”
Meðhöndlun: Má strjúka með rökum klút en betra að meðhöndla varlega eins og fallegt ljóð.
Þú getur alltaf sérpantað hjá mér skál í þeirri samsetningu sem þig langar í - sendu á mig línu eða hringdu - Sigrún s. 699-1179 - cooldesign@cooldesign.is
*Skálarnar eru fisléttar og ég nota þær td. undir handavinnu (mæli með því, sérstaklega er handhægt að skella skálinni í tösku, hún fer mjög vel í kjöltu og ég hef hana alltaf með á ferðalögum ef eiginmaðurinn er að keyra og ég reyni að róa mig! Þá skelli ég skálinni í kjöltuna og sauma út :)
Sagan að baki hugmyndinni:
Ég er mikill bókaormur og langaði að gefa bókum framhaldslíf í formi smart og kúl nytjahluta og ekki síður að heiðra okkar íslenska bókmenntaarf – að auki langaði mig að nota hráefni sem tengist Íslandi og ef það eru ekki bækur – þá veit ég ekki hvað er!
Ég smíða hverja einustu skál og er hver skál einstök. Vinnuferlið er seinunnið; ég formbeygi, slípa og yfirborðsmeðhöndla. (Ég smíða líka bakka sem passa við).
Formið á skálunum kom til af því ég ólst upp í Vestmannaeyjum þar sem öll tilveran snýst um báta. Í barnæsku hafði ég óskaplega gaman að sitja á gamla Skansinum og fylgjast með bátunum í innsiglingunni eða labba bryggjurnar og sagði við mömmu sem lítil hnáta: "Koma og skoða dugga-dugg ... (sem ég kallaði bátana).
Skálarnar heiðra þessi minningarbrot því formið á þeim minnir á "duggandi báta". Svo endaðu Eyjaárin er mér gaus uppá land og ég kom á ruggandi-duggandi fiskibáti 23. janúar 1973.
PS. Ísland er og hefur alltaf verið bókmenntaþjóð, Reykjavík var útnefnd Bókmenntaborg UNESCO 2011, sú fyrsta sem ekki tilheyrir ensku málsvæði.
"From Book to Bowl" – An eco-friendly bowl from recycled books among other materials! – Handmade by the designer herself
Size of the MEDIUM bowl: Length: 10 cm - Width: 18 cm height: 14 cm
Examples about possibilities for use:
- A great addition to your brunch table as for bread, snacks, fruits ...
- For all your remotes!
- Decorative bowl on your coffee table f.ex. dried flower decorations.
- Great match with some of the "From Text to Tray"
Here’s the story behind the idea:
I love reading and I wanted to extend the life of books, make some cool and practical items and at the same time honor the heritage of Icelandic Literature. And also a book is truly a unique Icelandic material! I make all the bowls myself and the process of the making is time-consuming; each piece is shaped, sanded and then the surface polished . (I also make trays that match the bowls).
The form of the bowls come from where I was brought up - but that’s in Vestmannaeyjar (The Westman Islands) - were the life of the inhabitants is based on fishing for sustenance. As a child I loved taking walks with my mom to watch the boats either along the harbours or see the boats come sailing in a rough sea and watch how the they bumped and rocked! Therefore I made the form of the bowl in reminiscence of a boat ... which you can rock.
Handle your bowl with care, just like it were a beautiful poem. To clean it, use a damp cloth.
P.S. Reykjavik was named UNESCO’s City of Literature, the fifth city in the world and the first non-native English-speaking city to receive this honorary title